LÖG FÉLAGS YFIRMANNA ELDHÚSA HEILBRIGÐISSTOFNANA Á ÍSLANDI.



1.  NAFN
1. grein:    Nafn félagsins er: Félag yfirmanna eldhúsa heilbrigðisstofnana á Íslandi. Aðsetur þess er þar sem formaður er hverju sinni.

2.  SKILGREINING
1. grein:    Félag yfirmanna eldhúsa heilbrigðisstofnana á Íslandi.fjallar um faglega þætti í eldhúsum heilbrigðisstofnana. T.d. á sviði menntunar, endurmenntunar, námskeiðahalds, innkaupa, þróun matseðlagerðar, birgðahalds og gæðastjórnunar.

3.  TILGANGUR
1. grein:        Markmið félagsins er að efla samvinnu meðal eldhúsa heilbrigðisstofnana.
2. grein:        Leitast er við að ná markmiðum m.a. með eftirfarandi hætti:
Með því að koma á samböndum og miðla upplýsingum til þeirra sem starfa við stjórnun eldhúsa heilbrigðisstofnana.
Með félagsfundum.
Með námskeiðahaldi a.m.k. einu sinni á ári, samhliða aðalfundi.
Með því að stuðla að stofnun vinnuhópa um ákveðin verkefni fyrir eldhús heilbrigðisstofnana.

4.  FÉLAGAR
1. grein:    Allir sem starfa eða hafa starfað við stjórnun eldhúsa heilbrigðisstofnana geta orðið félagar.
2. grein:    Félagsgjald er krafið fyrirfram fyrir eitt ár í senn og er óafturkræft.
3. grein:    Félagi telst fullgildur fyrir það starfsár sem hann/hún hefur borgað félagsgjald.

STJÓRNUN OG HÆFNI

1. grein:        Með æðsta vald fer aðalfundur. Þess á milli fer stjórn með völdin.
2. grein:    Aðalfundur skal haldinn að hausti ár hvert. Til hans skal boðað með minnst 30 daga fyrirvara. Aðalfundarboð og dagskrá skal senda skriflega til allra félaga. Tillögur um lagabreytingar sem taka á fyrir á aðalfundi, skulu sendar út með aðalfundarboði. Rétt á setu á aðalfundi og atkvæðisrétt hafa allir fullgildir félagar.

Dagskrá aðalfundar:

Kosning fundarstjóra og fundarritara.
Skýrsla stjórnar.
Endurskoðaðir reikningar lagðir fram.
Lagabreytingar.
Kosning formanns til tveggja ára. Kosning annað hvert ár
Kosning 4ra meðstjórnenda, tveggja til 2ja ára og tveggja til eins árs og 2ja skoðunarmanna reikninga, eins til 2ja ára og eins til eins árs..
Félagsgjald ákveðið
Kynning nýrra félaga.
Önnur mál.


3. grein:    Auka-aðalfundur skal haldinn innan 6 vikna frá aðalfundi ef þrír eða fleiri stjórnarmenn eða þriðjungur félagsmanna eða fleiri krefjast þess skriflega þar sem umræðuefnið er upp gefið. Boðað er skriflega til auka-aðalfundar með 30 daga fyrirvara.
4. grein:    Í stjórn félagsins skulu sitja 5 menn/konur. Stjórnin skipar sjálf með sér verkum að undanskildum formanni sem er kosinn sérstaklega.

LAGABREYTINGAR

1. grein:        Lögum félagsins má aðeins breyta á aðalfundi og þarf 2/3 hluta greiddra atkvæða.