Þinglok á Egilstöðum

25.06.2008
Nú er velheppnuðu afmælisþinig YEHÍ lokið með glæsilegu lokahófi á Hótel Héraði á Egilsstöðum. Þar var Birgir Jónsson á Ísafirði hugmyndasmiðurinn að þessu fagfélagi okkar gerður að heiðursfélaga og óskum við Birgi til hamingju, og þökkum fyrir að koma þessu félagi á laggirnar.
Þokkaleg mæting var á þetta þing, en við hefðum samt sem áður viljað sjá fleiri þar sem þetta var nú 10 ára afmæli félagsins. Fyrirlestrar og skoðunarferðir voru af betri gerðinni og ekki skemmdi glæsilegt lokahóf fyrir enda fóru allir ánægðir heim á sunnudeginum.