Vínráðgjöf í Hagkaupum.
21.07.2008 Hagkaup hafa tekið upp þá nýbreytni að bjóða viðskiptavinum sínum vínráðgjöf í verslunum sínum í Kringlunni og Smáralind. Fókusað verður á eitt vín í einu og er valið vín sem að fer vel með góðum mat.
Núna í sumar verður horft sérstaklega til vína sem að fara vel með grillinu og það haft að leiðarljósi að auðvelda innkaupaferðina og mæla með víni sem svo er hægt að nálgast í Vínbúðinni.
Vínráðgjafi verður til staðar næstu fimmtudaga og föstudaga milli kl. 16 og 18.
Þetta er ný þjónusta sem að vonandi leggst vel í landann.
www.mekka.is greindi frá þessu en þessi vefur er góðu fyrir félagmenn til að rýna inn í heim vínanna.