GÆÐI OG ÖRYGGI ALLA LEIÐ

29.09.2008
Námskeið fyrir alla þá sem meðhöndla matvæli á einn eða annan hátt Áhersla er lögð á aukna þekkingu og víðsýni um gæði og gæðamál. Mikið er lagt upp úr verkefnavinnu sem nýtast mun þátttakendum við vinnu að gæðamálum í eigin fyrirtækjum.

HELSTU ÁHERSLUR Á NÁMSKEIÐINU:

• Öryggi í gegnum alla “fæðukeðjuna”: Hvað gerum við til að tryggja öryggi og gæði varanna sem við erum að framleiða ? Hvað með hráefnisframleiðendur, tækjaframleiðendur, framleiðendur umbúða og hreinsiefna – hvernig standa þeir að sínum gæðamálum?
 
• Stjórnun og upplýsingaflæði: HVAÐA MÁLI SKIPTA ÞESSI ATRIÐI ÞEGAR KEMUR AÐ ÞVÍ AÐ FRAMLEIÐA GÓÐA VÖRU EÐA GÓÐAN MAT. Eru stjórnendur með á nótunum?  Kynning á nýjum gæðastaðli fyrir matvælafyrirtæki -ISO 22000. Frábært hjálpartæki fyrir vinnu að gæðamálum í matvælavinnslum og stóreldhúsum. Markmið og framtíðarsýni fyrirtækisins: Hversu mikilvæg er markmiðasetning og skýr gæðastefna.

• HACCP : Hvað er HACCP? Hverning getum við nýtt okkur HACCP á praktískan hátt? Vörulýsingar, matseðlar, áhættur og eftirlit með áhættum. - Sýklar, ormar, histamín, þungmálmar, díoxín, aukefni, umbúðamerkingar o.fl. - Mælingar á hitastigi, eftirlit með hreinlæti og skynmat á matvælum.

• Kvartanir, hrós og framfarir. Hvernig vinnum við úr kvörtunum ? Hvernig nýtum við okkur hrós? Þjálfun starfsfólks. LEIÐIR TIL AÐ NÁ BETRI ÁRANGRI.

Tími námskeiðs: 29. og 30. september 2008 kl: 10:00 – 16:00
Skráning: í síma 512-3391 eða í gudrune@syni.is
Staður: Rannsóknarþjónustan Sýni Lynghálsi 3, 110 Reykjavík
Verð:  34.900.-
 
-Innifalið í verði eru námskeiðsgögn og veitingar
-Munið eftir styrkjunum úr fræðslusjóðum verkalýðsfélaganna!!


Komdu og vertu með á skemmtilegu og fræðandi námskeiði