Frestun þings á Ísafirði

05.03.2009
Kæru félagar Stjórn félagsins ákvað á fundi sínum 5 febrúar, eftir að hafa gert könnun hjá félagsmönnum, að fresta þinginu sem átti að vera á Ísafirði í maí. Fram hafði komið hjá flestum sem svöruðu að þeir fengju ekki leyfi til að fara vestur .

Til stendur að hafa stórsýningu á Grand Hotel í október næstkomandi á vegum "Stóreldhússins" og höfum við ákveðið að hafa þingið þá, þannig að fólk geti slegið 2 flugur í einu höggi og farið á sýningu, aðalfund og fyrirlestra hjá félaginu og vonandi getum við fengið að fara í einhverjar heimsóknir í fyrirtæki .

Þessi ákvörðun er tekin með tilliti til efnahagsástands í landinu og verður að öllum líkindum til þess að einhverjar breytingar verði á þessum þingum hjá okkur .
Upp hefur komið hugmynd um að opna félagið fyrir fleiri hópum s.s. þeim sem starfa í skólamötuneytum eða minni mötuneytum og hefðum við vilja ræða þessi mál á næsta aðalfundi þar sem þetta mundi krefjast lagabreytinga .
Við munum senda tillögur að lagabreytingum þegar nær dregur.
 
 
 

Einnig viljum við minna ykkur á að nota netið og okkar heimasíðu YEHI.is til að fylgjast með
hvað er að gerast.
 
 
Með góðri kveðju frá stjórninni .