11. aðalfundur YEHÍ

29.10.2009
11. aðalfundur YEHÍ hófst í morgun með því að María formaður setti fund og fór yfir dagskrá og áherslur fundarinns. Fundastóri var kosinn Olga Gunnarsdóttir og hóf hún hún hefðbundin fundarstörf svo sem lesningu fundagerðar síðast aðalfundar,
og að því loknu var farið yfir skýrslu formanns og hugmyndir um stækkun
félagsins sem tekið yrði til umræðu undir liðnum önnur mál.Reikningar ársins
voru samþykktir og stjórnin endurkjörin með lófataki og einnig var ákveðið
að hafa félagsgjaldið óbreytt. Kynntir voru nýjir félagar sem að þessu sinni
eru fjórir Fjóla Berglind frá Egilstöðum, Kristján Guðnason frá Hornafirði
Haukur S Gunndórsson frá Akranesi og Ágústa Hulda frá Vestmannaeyjum, og var
þessu nýa fólki fagnað með lófataki.
Undir liðnum önnur mál var m.a rætt að taka inn fólk frá Skólamötuneytum
til stækkunar og sitt sýndist hverjum og tóku margir félagsmenn þátt í þessum
umræðum.
Samþykkt var að vísa stækkunarmöguleikum félagsins til stjórnar til
ákvörðunar. Einnig var samþykkt að halda aðalfundinn í september- október
ár hvert og að næsta þing verður á Ísafirði eins og átti að vera í ár.
Einnig var rætt um ýmis fræðslumál og tillögur um slíkt á komandi þingum.
Fundurinn tókst vel í alla staði nema mæting hefði mátt vera betri.