Stóreldhúsið 2009
02.11.2009Samhliða aðalfundi okkar á Grand Hótel Reykjavík fór fram sýningin Stóreldhúsið 2009 og tóku félagsmenn þátt í henni að hluta seinnipart fimmtudags og síðan var föstudagurinn tekinn að öllu leyti til skoðunar á því sem fyrirtæki höfðu fram að færa.
Félagið vill koma á framfæri þakklæti til allra sem komu að þessari glæsilegu sýningu og fyrir allar þær frábæru móttökur sem við fengum í básum allra fyrirtækja sem þarna áttu hlut að máli.
Þess má geta að fullt af myndum frá sýningunni er komið inn á myndasafnið okkar.
http://www.yehi.is/?p=300&gal=84557