Dagskrá Þings á Ísafirði

26.08.2010
Þá liggur dagskrá þings YEHÍ fyrir,en eins og fram hefur komið verðum við á Ísafirði 23 sept – 25 sept. Þátttökugjald er 35..000 innifalið í því er gisting í tvíbýli (40 þús ef einbýli ) og matur allan tímann , rútuferðir, námskeið og 3 rétta kvöldverður á laugardagskvöldinu Félagið borgar niður kostnað félasmanna. Þeir sem skulda félagsgjald fyrir árið verða rukkaðir um það líka.

Þátttaka tilkynnist fyrir 10 sept til Maríu Sigurðard  í síma 8245671 eða
netfangið masig@landspitali.is / masig@simnet.is
 
 
 
            Stjórn YEHÍ
 
Formaður :                    Borghildur María Bergvinsdóttir          Fjölsmiðjuni
Varaformaður :              Jóhann Sveinsson                              
Gjaldkeri :                    Garðar Halldórsson                            Sjálfsbjörg
Ritari :                          María Sigurðardóttir                           LSH
Meðstjórnandi :              Eyjólfur Kolbeins                               Ás Hveragerði
Varamenn :                   Bryndís Arnfinnsdóttir                        MS félagið
Skoðunarmenn :            Olga Gunnarsdóttir / Inger Nielsen
 Ritstjórar blaðs:            Elín Einarsdóttir / Olga Gunnarsdóttir                                                     
 
     
                                                                         
Dagskrá : 
Fimmtudagur 23 sept
Kl. 19.00 Móttaka og  skráning í matsal FSÍ(Sjúkrahúsið) 
Kl. 20 Aðalfundur – YEHÍ
Dagskrá aðalfundar :
•    Fundur settur
•    Skipaður fundarstjóri og fundarritari.
•    Skýrsla stjórnar frá síðastliðnu ári.
•    Lagðir fram endurskoðaðir reikningar.
•    Kosning formanns til tveggja ára.
•    Kosning gjaldkera.
•    Kosning meðstjórnenda.
•    Kosning eins varamanns.
•    Kosning eins skoðunarmanns.
•    Félagsgjaldið ákveðið.
•    Kynning nýrra félaga.
•    Önnur mál.
 
 
Föstudagur 24 sept
 
Kl 09:30 – 12:30
Fræðsla:Frá rannsóknarþjónustunni Sýni
 
Á námskeiðinu verður rætt um hvernig bæta má meðferð grænmetis og ávaxta og
hvernig aukna notkunarmöguleika með það að markmiði að bæta gæði og auka neyslu
þessara vara.
Nánar um efnistök:
Gæði og geymsluþol grænmetis og ávaxta
Áhrif hitastigs og fleiri þátta á geymsluþol – gerum smá tilraunir
Þroskun grænmetis og ávaxta – hvað er etýlen?
Varnarefni – lífræn ræktun – vistvæn ræktun – hefðbundin ræktun
Vöruþekking – hvar finnum við upplýsingar
Íslensk grænmetisframleiðsla
Notkunarmöguleikar – hugmyndir og sýnishorn. 
  
     
Kl. 12:30
Léttur hádegisverður. 
  
 
Kl 13:00 – 16:00
Ferð til Suðureyrar þar sem fyrirtæki verða skoðuð
 
Kl 16.30 – 24.00
 Heimsókn að Núpi í Dýrafirði
Þar hafa bræður verið með nýjungar í matreiðslu og verður fræðsla hjá þeim í því sambandi ( matur úr héraði ) 
  
 
Laugardagurinn 25 sept
 
Kl  10:00
 Morgunverður.
 

Kl 11:00
Óvissuferðsem Birgir sér um 
Frítími frá kl 15.00 til 19.00


Kl 19 :00
Árshátíð YEHÍ  á Hótel Ísafirði 
  
                                           
 
Sunnudagurinn 26 sept
Kl 10:00
Morgunverður – Heimferð.