Aðalfundur YEHÍ á Ísafirði
23.09.2010Jæja ágætu félagar, þá fer að styttast í aðalfund okkar og þing sem hefst í kvöld á Ísafirði, þar sem Biggi mun lofa okkur góðri helgi. Heldur er nú þáttaka dræm en það mun koma nánar fram hér á síðunni á morgun þegar allir hafa skilað sér á Ísafjörð og aðalfundi lokið.
Nú eru menn farnir að huga að brottför frá Reykjavík en áætlun Flugfélags Íslands er kl 17.00 og erum við Eddi mættir á flugvöllun og reiknum við með að flestir sem fari þessa leiðina taki þetta flug.
Nánar síðar.
TS.