Brauð úr fjölbreyttum hráefnum?

05.11.2010
Fátt er betra en angan af nýbökuðu brauði. Námskeið um
gerbakstur fyrir alla sem hafa áhuga á að baka sín eigin
brauð – dags daglega eða til hátíðabrigða.
• Bakaðar verða nokkrar mismunandi gerði brauða og á
meðan brauðin hefast búum við til sultur, mauk og
“chutney” til að borða með ilmandi brauðinu.
 Við verklega þáttinn verður fléttað fróðleiksmolum um
brauðbakstur s.s.
o Hvað gerist við brauðbakstur?
o Hvaða áhrif hafa hin ýmsu hráefni á brauðið?
o Hvað er súrdeig?
o Mismunandi leiðir að góðu brauði
o Hvað er hægt að nota í staðinn fyrir hveiti?
o Hvernig aukum við hollustu brauða?
o Hvað getum við notað af íslenskum hráefnum?
• Að lokum setjumst við niður og njótum afrakstursins
Skráning: Í síma 512-3391 eða í matvælaskolinn@syni.is
Dagsetning: Fimmtudaginn 25. nóvember 2010
Tímalengd: Kl: 14:00 – 17:30
Verð: 11.800,-
Staður: Rannsóknarþjónustan Sýni Lynghálsi 3, 110 Reykjavík
Komdu og vertu með á skemmtilegu og fræðandi námskeiði!
-Innifalið í verði eru námskeiðsgögn, uppskriftir, hráefni og léttar veitingar.
-Munið eftir styrkjunum úr fræðslusjóðum verkalýðsfélaganna!!
*Því miður er nauðsynlegt að innheimta skráningargjald að upphæð 2.500 kr. ef forföll eru ekki boðuð a.m.k.
tveimur dögum fyrir námskeið.
- Matur er okkar mál -