Nýr formaður YEHÍ

10.11.2010
Anna Rósa Magnúsdóttir  formaður YEHÍ 2010
fædd á Vopnafirði  27. Apríl 1968, giftist 1993 Sigurpáli Guðmundssyni frá Akureyri,  vélstjóra, rafvirkja og vaktstjóra hjá Becromal  og við eigum tvær dætur fæddar 1995 og 1998.
Búsett á Vopnafirði 1968-1984, Akureyri 1984-1992, Reykjavík 1992-1996, Vopnafirði 1996-1997, Akureyri 1997-til dagsins í dag.
NÁM:
Stúdent  af matvæla-náttúrufræðibraut frá  Verkmenntaskólanum á Akureyri  1992
Matartæknir  frá  Verkmenntaskólanum á Akureyri  1993 (Verknám á  LSH)
Matarfræðingur  frá Fjölbrautarskólanum í Breiðholti 1996 (Verknám á LSH)
Kennari  frá Háskólanum á Akureyri 2008
Löggild starfsleyfi : matartæknir og matarfræðingur 2000
 Löggild starfsleyfi:   næringarrekstrarfræðingur 2006
Löggild starfsleyfi:   almenn grunnskólakennsluréttindi  og  framhaldsskólakennsluréttindi í matartæknigreinum 2008

STÖRF :
Matarfræðingur á Sundabúð Vopnafirði (öldrunarheimili)  1996-1997
Matarfræðingur og staðgengill forstöðumanns eldhúss á Sjúkrahúsinu á Akureyri  2001-2006
Næringarrekstrarfræðingur og staðgengill forstöðumanns eldhúss á Sjúkrahúsinu á Akureyri  2006-2007
Næringarrekstarfræðingur og  Forstöðumaður eldhúss á Sjúkrahúsinu á Akureyri  2008 til dagsins í dag
Verknámskennari  hjá VMA fyrir matartækninema í  verknámi frá VMA á Sjúkrahúsinu á Akureyri  2003 til dagsins í dag

ÁHUGAMÁL:
Næring og næringartengd mál, matur og allt sem því fylgir, kennsla og skipulagning kennslu, gönguferðir, ferðalög innanlands sem utan, prjónaskapur  og eflaust eitthvað fleira.