Íslenska kokkalandsliðið hlaut gullverðlaun fyrir heita rétti
24.11.2010Íslenska kokkalandsliðið hlaut í dag gullverðlaun í flokknum „Heitir réttir" á heimsmeistaramótinu í matreiðslu. Keppt var í þessum flokki í gær og gæddu þá 110 manns sér á glæsilegri þriggja þriggja rétta máltíð. Fimm lið kepptu samtímis og höfðu þau sex klukkutíma til að undirbúa matinn. Selt var inn á keppnina í forsölu, gestir sátu við matarborð á keppnisstað og fengu matinn afgreiddan eins og á veitingastað.
Uppselt var tveimur vikum fyrir keppnina. Sex íslenskir kokkar voru í keppnisliðinu þegar heiti maturinn var eldaður og borinn fram.
Eyþór Rúnarsson, meðlimur kokkalandsliðsins, segir það vissulega ánægjulegt að hafa fengið gull í þessum flokki. Hann bendir þó á að liðið hafi ekki unnið neina keppni, enn.
Íslenska kokkalandsliðið hafði áður fengið silfurverðlaun í flokknum „Kaldir réttir" á Heimsmeistarakeppninni Expogast-Culinary World Cup sem haldin er í Lúxemborg.
Lokaverðlaun verða veitt á morgun og þá kemur í ljós hvaða lið stóð sig best þegar á heildina er litið.
Meðlimir í landsliðinu eru:
Gunnar Karl Gíslason Dill Resturant
Eyþór Rúnarson Nauthóll
Friðgeir Ingi Hótel Holt
Hrefna Rósa Jóhannsdóttir Sætran Fiskmarkaðurinn
Þráinn Vigfússon Grillið
Ólafur Ágústsson Vox
Jóhannes Steinn Jóhannesson Vox
Ómar Stefánsson Dill Resturant
Steinn Óskar Sigurðsson Höfnin Restaurant
Guðlaugur P Frímmannsson Fiskmarkaðurinn
Viktor Örn Andrésson Bláa lónið Lava Restaurant
Stefán Hrafn Sigfússon Mosfellsbakarí
Elísa Gelfert Sandholt
Karl Viggó Vigfússon Bakó Ísberg
Bjarni Kristinsson Grillið

Fréttavefurinn www.visir.is greindi frá