FÓÐUR EÐA FÆÐA

06.04.2011
MATVÍS stendur fyrir málþingi um mat í skólamötuneytum,
6. apríl kl. 15:00 að Stórhöfða 31, gengið inn að neðanverðu
MATVÍS stendur fyrir opnu málþingi fagmanna og framleiðanda um þá gagnrýni sem hefur komið fram á mat í mötuneytum skólanna.  Þar eru ásakanir um að fóður sé borið á borð en ekki fæða.

Til þess að fara yfir þessi mál hefur MATVÍS boðið eftirtöldum aðilum að gera grein fyrir sínum sjónarmiðum með framsögu og sitja síðan í pallborði.

Dagskrá:

Setning: Níels S. Olgeirsson formaður MATVÍS.

Framsögur.
Grímur Þór Gíslason hjá Grímur kokkur.
                Innihald og næringargildi þeirra vöru sem hann selur til mötuneyta og annarra.

 

Eðvald S Valgarðsson frá Kjarnafæði.
                Stefna Kjarnafæðis hvað varðar söltun, reykingu og aukefni í þeirra afurðum.

 

Ólafur Reykdal frá Matís.
Yfirlit um niðurstöður rannsókna á næringargildi brauð- og kjötvara.

 

Hólmfríður Þorgeirsdóttir  hjá Lýðheilsustöð.
Ráðleggingar Lýðheilsustöðvar um matarframboð í skólum byggt á  handbók fyrir skólamötuneyti

J. Trausti Magnússon matreiðslumeistari í grunnskóla.
Fer yfir hvernig hann velur sína birgja og á hvað hann leggur áherslu á við innkaup á matvöru.

Pallborðsumræður.

 

Fundarstjóri  Ólafur Jónsson hjá Iðunni fræðslusetri