YEHÍ þing fimmtudagur.
01.11.2011Að loknum aðalfundi sem haldin var á Mörkinni beið rúta eftir mannskapnum og haldið var suður í Reykjanesbæ, og byrjað var að fara í heimsókn í fyrirtækið Skólamatur ehf.en þetta er fjölskyldufyritæki sem matreiðir hollan, góðan og heimilislegan mat fyrir grunnskólanemendur.
Daglega eru máltíðir foreldaðar og snöggkældar til að tryggja ferskleika. Starfsmenn Skólamatar í hverjum skóla, fullelda síðan og framreiða matinn á disk nemenda, sem sjálfir velja sér meðlæti, t.d. grænmeti og ávexti af meðlætisbar.
Matseðlarnir, hráefnið og matreiðslan eru í samræmi við stranga næringar- og gæðastaðla. Fyritækið elda á sjöunda þúsund mata fyrir skóla í Reykjanesbæ, Garðinum, Grindavík, Hafnarfirði, Álftanesi og Garðabæ.
Það var eigandi fyritækisinns Axel Jónsson sem tók á móti okkur og sýndi okkur starfsemina og einnig sonur hanns Jón sem sér um daglegan rekstur, og þarna í lokin buðu þeir okkur upp á síldarrétti og drykki og berum við þeim feðgum bestu þakkir fyrir fræbærar móttökur. Næsta var haldið á vallarsvæðið þar sem Keilir er til húsa með sína starfsemi , keyrt var aðeins um og síðan komið í Officera klúbbinn þar sem Ásbjörn Pálsson staðarhaldari og matreiðslumeistari tók á móti okkur og þarna var okkur boðið í dýrindis 3 rétta dinner í boði Ekrunar og þökkum við þeim fyrir þennann rausnarskap eins og ávalt en þeir hafa stutt vel við bakið á okkur félagsmönnum. Að loknum dinner fór Ási með okkur um klúbbinn og eldhúsið og síðan var haldið út í rútu og enn undir handleyðslu Ása og nú var komið að því að kíkja inn á NATO svæðið sen enn er lokað og þurftum við að fá passa og fara í gegnum vopnaleit og í fylgd öryggisvarða um svæðið, en þarna var margt að sjá og skoðuðu við m.a flugskýlin sem notuð voru og eru undir orustuþotur NATO. Þegar við höfðum lokið túrnum með Ása og þakkað honum fyrir þá kom annar leiðsögumaður frá ÍA sem fór með okkur vítt og breitt um gamla vallarsvæðið og m.a um elsta hlutan og það skoðuðu við gömul sprengjuskýli, sem hljóðburður er með afbrigðum góður og Magnús félagi okkar Níelsson tók nokkur ættjarðarlög við gott sánd og góðar undirtektir.
Að lokinni góðri ferð til Reykjanesbæjar var haldið aftur til Reykjavíkur og farið í heimsókn til Ásbjarnar Ólafssonar og þar var tekið á móti okkur með miklum höfðingskap eins og ávalt, þarna var okkur boðið upp á kynningu á vörum fyrirtækisinns og ýmiskonar smakk ásamt drykkjum og að lokum bauð fyrirtækið okkur á Vínbarinn niður við Austuvöll til hressingar. Við viljum koma fram þakklæti til þessa góða fyritækis og starfsmönnum þess sem tóku svona höfðinglega á móti okkur.
TS.

Myndir frá ferðinni má nálgast með því að klikka HÉR