Fyrirlestur sykursýki = almennt mataræði
07.11.2011Á þinginu nánar tiltekið á föstudeginum fyrir hádegi var boðið upp á fræðslu með fyrirlestri um sykursýki = almennt mataræði og var það Bertha María Ársælsdóttir Matvæla og næringarfræðingur sem flutti okkur þetta erindi. Bertha María fór vel yfir málefnið eins og blóðsykursveiflur, klínískar leiðbeiningar við sykurskýki frá Landlæknisembættinu, sérstakar ráðlegginar, fæðuhringin, matseld og margt fleira.
Þetta var frábært erindi og margt kom þarna fram sem við kokkar höfum haldið fram lengi og síðan margt sem kom á óvart, enda er alltaf verið að gera nýja hluti hvort sem það er í matreiðslu eða rannsóknum á sjúkdómu og áhrif mataræðis á þá.
En við félagsmenn viljum þakka Bertu Maríu kærlega fyrir frábært erindi.
Glærur frá erindi Bertu Maríu má nálgast HÉR.
En við félagsmenn viljum þakka Bertu Maríu kærlega fyrir frábært erindi.
Glærur frá erindi Bertu Maríu má nálgast HÉR.