HACCP - Gæðakerfið

14.03.2012
Gæði og öryggi alla leið
Með áherslu á nýja skoðunarhandbók frá MAST.
Námskeið fyrir alla þá sem meðhöndla matvæli á einn eða annan hátt
Áhersla er lögð á að þátttakendur skilji grundvallaratriði HACCP gæðakerfisins og geti innleitt það í sínum fyrirtækjum. Mikið er lagt upp úr verkefnavinnu. Þátttakendur vinna m.a. verkefni úr eigin gæðakerfum.
 Efni námskeiðs:
•            Öryggi í gegnum alla “fæðukeðjuna”: Frumframleiðendur, matvælaframleiðendur, dreifingarfyrirtæki, smásalar, tækjaframleiðendur, framleiðendur umbúða og hreinsiefna.
•            Staðlar – stutt kynning ( t.d  ISO staðlar, IFS staðall, BRC staðall).  Frábær hjálpartæki fyrir matvælafyrirtæki sem vilja vera í fremstu röð hvað varðar gæði og öryggi. Markmið, framtíðarsýn og skýr gæðastefna skiptir höfuðmáli fyrir fyrirtæki í fararbroddi.
•            Fyrirbyggjandi aðgerðir – GMP ( góðir framleiðsluhættir) þurfa að vera mjög virkar áður en HACCP kerfi er komið á t.d virk hreinlætisáætlun, teikningar yfir flæði vöru og starfsfólks, kröfur til birgja, þjálfun starfsfólks, fyrirbyggjandi viðhald og hitastigsstjórnun.
•           HACCP gæðakerfið. Hvað er HACCP ?, hvernig komum við því á og hvernig innleiðum við það? Hvernig getur HACCP kerfið hjálpað til að auka öryggi matvæla ?, Hættur, hættugreining, mikilvægir stýristaðir, eftirlit, vikmörk, úrbætur.
•          Yfirlit yfir helstu hættur í matvælum s.s sýkla, sníkjudýr, histamín, þungmálmar, díoxín, ofnæmisvaldandi efni, aðskotahluti o.fl.
•          Kvartanir – Hvernig vinnum við úr kvörtunum ? Rekjanleiki – eitt skref áfram og eitt skref aftur– hvað þýðir það í framkvæmd. Innköllun – prufuinnköllun.
•          Sannprófun á gæðakerfum – dagleg, vikuleg og árleg. Til að tryggja að ávallt sé verið að vinna eftir HACCP gæðakerfinu.
Dags.: 28., 29. og 30. mars 2012  
kl.: 10-16 fyrsta daginn, 9-15 hina dagana
Staður: Matvælaskólinn hjá Sýni
Lynghálsi 3, 110 Reykjavík
Verð: 55.000 kr.- *
Skráning: í síma 512-3385 eða matvaelaskolinn@syni.is
Sjá nánar allt um námskeiðið í meðfylgjandi viðhengi.

Matvælaskólinn hjá Sýni
   S: 512-3385 (Sigrún)
   S: 512-3389 (Linda)

www.syni.is
 
Prentvæn útgáfa klikka HÉR