Skoðunarferð á laugardeginum

03.10.2012
Að loknum aðalfundi og fyrirlestrum á laugardeginum, var haldið út í rútu og haldið í smá skoðunarferð á tvo staði og var sá fyrri á Hauganesi við Eyjafjörð en þar er til húsa Ektafiskur. Hjá Ektafiski tók á móti okkur Elvar Reykjalín eigandi og eigendur Eldjallabruggs/Thyrna ehf. Elvar fór með okkur um fyrirtækið og m.a skoðuð við eldhúsið þar sem fiskibollur er lagaðar ásamt fleiru.
Síðan var kynning og okkur boðið upp á heilsu- fiskibollur sem þeir framleiða og einnig var boðið upp á snaps og hákarl. Atli Pálsson og Rúnar Friðriks frá Eldfjallabruggi/Thyrma buðu okkur að smakka þessa frábæru drykki sem þeir eru að framleiða undir nafninu Volcanic og eru þetta áfengir gosdrykkir eins og Breezer og fleiri í þeim flokki, frábær vara hjá þeim eins og hjá Ektafiski. Áður en haldið var áfram vildi Elvar fá tvö lið fimm konur og fimm karla til að keppa í dýfingum, sem felst í því að smokkfiskur var skorinn í bita og settur ofan í djúpa bakka fulla af vatni og áttu keppendur að dýfa höfðinu ofan í og taka bita í munninn og svo koll af kolli eins og í boðhlaupi og höfðu aðrir en þeir sem kepptu mikið gaman af, og í verðlaun var hákarsbox. Þegar út var komið og á leið í rútana kallaði Elvar alla út aftur og syndi snilli sína á lyftara þegar hann tók upp hundrað kónu pening á lyftaranum. Þetta var  frábær heimsókn og berum við þessum aðilum okkar bestu þakkir fyrir.
Næst var haldið á Árskógsand til að skoða bjórverksmiðjun Kalda sem þar er stödd og þar tók á móti hópnum Þorsteinn Ingi Ragnarsson , skemmtilegur ungur maður sem fór yfir sögu fyritækisinns og ferlir bjórsinns frá upphafi til enda og fékk hópurinn að smakka á framleiðslunni bæði lager og dökkann bjór og er ekki hægt annað að segja að þarna er frábær framleiðsla á ferðinni enda sýna sölutölur það Kaldi er bæði góður og vinsæll bjór og viljum við þakka fyrir góðar og hlýjar móttökur hjá Kalda. Að þessum heimsóknum loknum var haldið til baka á Akureyri til að fara að undirbúa sig fyrir lokahófið.
 
Myndir eru undir myndasafni