Lokahóf YÉHÍ á Akureyri
09.10.2012Lokahóf þingsinns okkar á Akureyri var haldið í menningarhúsinu Hofi á fjórðu hæð (svalir) mjög skemmtilegur staður með góðu útsýni yfir hafnarsvæðið og yfir inngang og holið í Hofinu sjálfu. Þegar gestir voru mættir var boðið upp á fordrykk í boði Íslensk-Ameríska, og eftir gott spjall yfir honum hófst
kvöldverður sem samanstóð af aðalrétti sem var í boðið Norðlenska og síðan eftirréttur sem var í boðið Garra. Veislustjóri var upprennandi stjarna í uppistandheiminum að nafin Sigurvina en gengur undir nafninu Fílinn. Kappinn stóð sig vel fór með sögur og gamanmál og snéri þeim oft á tíðum upp á viðstadda. Við áttum þarna skemmtilega kvöldstund saman og vilju við félagsmenn þakka þessum fyrirtækjum sem studdu okkur í þessu svo rausnarlega kærlega fyrir þetta er ómetanlegt að fá svona stuðning við þessi þing okkar.
Myndir má nálgast HÉR