Sætuefni úr Stevíujurt

22.06.2013
Stefnt er að því að hefja í næsta mánuði framleiðslu á sætuefni úr stevíujurt í Stevíuveri Via Health. Í tilkynningu félagsins kemur fram að innflutningur sé þegar hafinn, en jurtin er ræktuð í norðausturhluta Kína.
Verið opnaði formlega í gær að Grjótahrauni 8 í Hafnarfirði þar sem vatnsveita bæjarins var áður. Til að byrja með vinna tíu í Stevíuverinu.
Fyrirtækið sem er í kínverskri eigu stefnir að því að gera Ísland að framleiðslu- og dreifingarmiðstöð fyrir stevíusætu til ríkja Evrópusambandsins og Bandaríkjanna. "Hægt er að afgreiða vöruna á einni til tveimur vikum frá Íslandi en það tæki um átta til níu vikur frá Kína," segir í tilkynningu.

Þar kemur einnig fram að stevíusæta sé 100 til 300 sinnum sætari en sykur en um leið kaloríulaus með öllu og hafi hvorki áhrif á blóðsykur né valdi tannskemmdum.

Framkvæmdastjóri Via Health

er Bjarný Björg Arnórsdóttir og gæðastjóri er Árni Ingason matvælaefnafræðingur. Auk þeirra voru við opnunina í gær bæjarstjóri og embættismenn frá Boli og Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarstjóri í Hafnarfirði.
 
Fréttablaðið greindi frá.
 
Meira um Stevíujurt