Aðalfundur 2013

31.10.2013
Aðalfundur YEHÍ var haldinn í dag á Hilton Hótelinu í Reykjavík.
Formaðurinn Anna Rósa Magnúsdóttir setti fundinn og byrjaði á venjulegum fundarstörfum og stiklaði síðan á stóru yfir dagsskrá þingsinns, og skýrði frá fræðslum sem eru í boði og heimsóknum sem við förum í á þessu þingi. Því næst var Sigurvin skipaður fundarstjóri og Olga fundarritari. Sigurvin hóf fundinn á að kynna nýja félaga  en tveir hafa bæst við í hópinn okkar, Harpa frá Eskifirði og Ævar frá HSV í Vestmanneyjum.
Síðan kynntu fundarmenn sig með því að standa upp og skýra frá stofnun sem þeir starfa fyrir. Anna Rósa flutti fundargerð síðasta fundar í forföllum Maríu og síðan skýrslu stjórnar. Garðar lagði fram endurskoðaða reikninga ársinns, og eftir nokkurar fyrirspurnir voru þeir samþykktir.
Kostning í stjórn fór næst fram og var Tómas Sveinsson kosinn ritari, Ingvar Jakobsson meðstjórnandi og María Sölvadóttir varamaður í stjórn, og Jóhann Sveinsson skoðunarmaður.
Ákveðið var að hafa félagsgjaldið óbreytt.
Undir liðnum önnur mál kom upp umræða um næsta þingstað og var ákveðið að það yrði Vestmannaeyjar í September á næsta ári. Meðal annars var rætt um að þegar við værum að ráða fyrirlesara þá þarf að vera búið að semja um allann kostnað fyrirfram svo ekki séu að koma bakreikningar á okkur.
Rætt var um að við þyrftum að kynna félagið okkar betur og bauð Sigurvin sig fram um að vera Kynningarfulltrúi félagsins á vormánuðum þegar kappinn hættir að vinna. Að lokum var Maríu Sigurðardóttur og Jóhanni Sveinssyni þökkuð góð störf fyrir félagið og þeim gefið hressilegt lófaklapp, og að því loknu lauk fundarstjóri störfum og Anna Rósa sleit fundi.
 
Myndir frá fundinum má nálgast HÉR.