Dagskrá fimmtudags.

31.10.2013
Dagskrá dagsinns er búin að vera þéttskipuð, að loknum Aðalfundi félagsins tók við fræðsla sem hófst á erindi frá Matvælastofunum sem var hið fróðlegasta og þá sérstaklega um allt þetta reglubatterí sem við búum við og enn og aftur virðumst við vera að taka regluverkið upp eftir Svíum.
Næst var komið að kynningu frá Íslensk Ameríska um maukfæði og er orðið greinilega mikið úrval af slíkum vöruflokkum í dag, þarna fengu fundarmenn að smakka framleiðsluna og heilt yfir líkaði vel.
Að loknu matarhléi var haldið áfram í Maukfæðinu og nú var komið að Eggert Kristjánssyni og Findus að kynna sína vörur. Það er óhætt að segja það að þessi kynning var mjög fagmanlega gerð þó svo að hún tæki frekar langan tíma en kynningin fór fram á Ensku (ekki sérstaklega góðri) og vonum við að efnið hafi komist til skila.
Persónulega smakkaði ég á þessum vöruflokkum sem var verið að kynna og að mínu mati var þetta afbragð og greinilega mikið lagt í gæði vörunar sem verið var að bjóða okkur. Já í einu orði sagt Frábært.
Við félagsmenn í Yehí viljum koma fram þakklæti til þeirra sem komu að þessum kynningum með okkur og vonandi á þetta eftir að skila sér í auknum viðskiptum.
Að lokinni dagskrá var haldið á sýninguna Stóreldhúsið 2013 sem haldin er hér á Hilton Hótelinu.

Myndir má nálgast HÉR.