Skoðun fyrirtækja.
05.11.2013Að venju var farið í skoðunarferð um fyrirtæki á þessu þingi okkar, og var farið í rútu frá Hilton Nordica kl 10.00 á föstudagsmorgni. Fyrsti áfangastaður var Lambhagi, en gaman var að koma þarna því þetta er eins og sveit inn í miðri borg, eða vin í eyðimörkinni. Farið var með okkur um svæðið og sagt frá uppbyggingu fyrirtækisinns og vexti undir dyggri leiðsögn eiganda, en Garðyrkjustöðin Lambhagi var stofnuð 1979 af fjölskyldu Hafbergs Þórissonar. Að lokinni skoðum var okkur boðið upp á veitingar í skemmtilegum húsakynnum á svæðinu.
Næsti viðkomustaður okkar var Garri heildverslun og þar tók á móti okkur Hafliði sölustjórni og hans fólk sem fóru með okkur um húsakynni og lager fyrirtækisins en Garri sérhæfir sig í innflutningi og sölu á gæðamatvöru og matvælaumbúðum fyrir veitingastaði, hótel, bakarí, skóla og leikskóla auk mötuneyta og ferðaþjónustufyrirtækja. Fyrirtækið er í örum vexti og er búið að spengja núverandi húsnæði utan af sér og til stendur á næstu árum að byggja nýtt húsnæði að Hádegimóum. Að lokum buðu Garramenn okkur til fundarsalar og fóru yfir með okkur á glærum starfsemi Ardo sem er einn stærsti framleiðandi frysts grænmetis í heiminum í dag , og var erindið hið fróðegasta og bæði flutt í máli og myndum, og meðan á fyrirlestri stóð var okkur boðið upp á léttar veitingar.
Við fórum næst og skoðuðum Krydd og Kavíar en það er fyrirtæki sem rekur hádegisverðarþjónustu við fyrirtæki. Krydd & Kavíar var stofnað í apríl 2000 af Garðari Agnarssyni og Ólafi H. Jónssyni og markmið Krydd & Kavíars hefur verið frá byrjun að þjónusta mötuneyti fyrirtækja. Gísli matreiðslumeistari tók á móti okkur og sýndi okkur húsakynni og tækjakost og fór yfir starfsemi fyrirtækisins og útfærslur við afgreiðslu á þessu gífurlega magni matar sem sent er út frá fyrirtækinu en hjá Krydd & Kavíar starfa um 30 manns daglega.
Síðasti áfangastaður okkar að þessu sinni var Tandur en starfsemi Tandurs snýst um sölu og tilheyrandi þjónustu á hreinlætisvörum til fyrirtækja og stofnana. Á meðal viðskiptavina Tandurs eru fyrirtæki í matvælaiðnaði, stóreldhús, mötuneyti, veitingastaðir, skólar, heilbrigðisstofnanir, íþróttamiðstöðvar og þrifaverktakar. Hjá Tandri starfa rúmlega 20 manns, efnafræðingar, vélstjórar, mjólkurtæknifræðingar, söluog markaðsfræðingar og starfsfólk með langa reynslu á sínu sviði. Guðmundur G. Guðmundsson framkvæmdastjóri og hans menn tóku á móti okkur og buðu okkur upp á veitingar í fundarsal fyrirtækisins og glærusýningu um starfsemina, sem er mikil og ört vaxandi, og eru Tandursmenn búnir að fjárfesta í næsta húsi fyrir ofan til að auka lagerpláss. Að loknu erindi var farið í skoðunarferð um fyrirtækið, lager framleiðslu o.fl undir dyggri leiðsögn framkvæmdastjóra og starfsmanna Tandurs, greinilega öflugt fyrirtæki þarna á ferð.
Að þessari fyrirtækjaheimsókn lokinni var haldið niður á Hilton Nordica og skoðað sig um á sýningunni Stóreldhúsið 2013.
Við félagsmenn í YEHÍ viljum koma fram innilegu þakklæti til allra þessara fyrirtækja fyrir hlýjar og höfðinglegar móttökur og skemmtileg viðkynni .
Tómas Sveinsson.
Myndir má nálgast HÉR