Jóhann Sveinsson lætur af störfum.

09.11.2013
Jóhann Sveinsson lét af störfum sem varaformaður félags Yfirmanna Eldhúsa Heilbrigðisstofnana á Ísland  á síðsta aðalfundi. Jói er búinn að vera í stjórn félagsins lengi og unnið ötullega að mörgum málum er varða hagsmuni félagsmanna. Jói hefur unnið afar vel með formanni sem og allri stjórninni, við undirbúning þinga og aðalfunda, en nauðsynlegt er að hafa í stjórn gott fólk sem á góð samskipti við helstu heildsölur landsins.
Það var klappað vel og lengi fyrir Jóa á aðalfundinum og honum þökkuð vel unnin störf, en síðan stóð til að afhenda honum forláta hnífasett frá Fastus í kvöldverðinum í Perlunni um leið og Maríu var fært sitt, en Jói forfallaðist og gat ekki tekið á móti sínu hnífasetti, honum verður því selt það síðar,  á eina krónu, eins og Maríu,  til að storka ekki örlögunum.

Stjórn og félagsmenn YEHÍ þakkar Jóa kærlega fyrir vel unnin störf og óskum við  honum velfarnaðar í leik og starfi.

Anna Rósa Magnúsdóttir
Formaður YEHÍ