Kvöldverður í Perlunni.

09.11.2013
Lokahóf þingsins fór fram í Perlunni að þessu sinni, en Perlan er um þessar mundir að bjóða uppá glæsilegt villibráðahlaðborð að hætti hússins. Hópurinn var um 40 manns með mökum og birgjum sem bjóða okkur af sínum rausnarskap.  Það var Fastus sem bauð okkur uppá fordrykk og síðan voru það Ekran, Garri, Kjarnafæðir, Eggert Kristjánsson, Esja og Bananar sem buðu okkur uppá þetta glæsilega hlaðborð. Á lokahófinu var Maríu Siguðardóttur þökkuð góð störf fyrir félagið en hún lætur nú að störfum sem ritari félagsins.
Þetta var yndisleg kvöldstund sem félagsmenn og gestir áttu þarna saman í Perlunni og viljum við félagar í YEHÍ þakka áðurtöldum fyrirtækjum kærlega fyrir gott boð og velvild í garð félagsins.
 
Myndir má nálgast HÉR