María Sigurðardóttir lætur af störfum.

09.11.2013
María Sigurðardóttir ritari félags Yfirmanna Eldhúsa Heilbrigðisstofnana á Íslandi óskaði ekki eftir endurkjöri sem ritari á nýafstöðnum aðalfundi.  Hún hefur verið ritari félagsins í mörg ár og skilað því starfi með miklum sóma. Hún hefur haldið utan um félagatal, ritað fundargerðir, auglýst fundi og uppákomur. Eins hefur hún verið fagleg og mjög hugmyndarík hvað varðar möguleika á fræðslu og þema á þingum. 
Það er því mikill missir fyrir félagið þegar hún hættir störfum en það kemur maður í manns stað og við horfum bjartsýn fram á veginn. Í þakklætisskyni fannst okkur við hæfi  á  þessum tímamótum að færa Maríu gjöf  og fengum við hjá Fastus forláta hnífasett sem við færðum henni í kvöldverðinum í Perlunni en þar sem það  boðar ekki gott að gefa hnífa þá seldum við henni hnífasettið á eina krónu við mikinn fögnuð viðstaddra og að lokum skáluðum við henni til heiðurs.
 
Stjórn YEHÍ þakkar Maríu kærlega fyrir vel unnin störf og óskum við  henni alls hins besta í framtíðinni.

Anna Rósa Magnúsdóttir
Formaður YEHÍ