Þing í Eyjum

29.04.2014
Ágæti félagsmaður.

Næsti aðalfundur og þing okkar 2014 verður haldið í Vestmannaeyjum dagana 19 -20 september. Búið er að setja upp drög að dagskrá, og að venju komum við til með að fá góða fræðslu ásamt fróðlegum fyrirlestrum. Hver og einn kemur til með að þurfa að panta ferðir og gistingu og er þá um Herjólf að ræða og flugfélagið Erni sem sinna flugi til Eyja.
Margir gistmöguleikar eru í boði eins og sjá má á meðfylgjandi skjali, en stjórnin hefur ákveðið að vera á gistiheimilinu Hamri en þar getum við fengið fundarsal án endurgjalds ef við gistum.
Þess ber að geta að félagsmenn geta sótt um styrki í Fræðslusjóði stéttarfélaganna og er um að gera að nýta sér það.

Vinsamlegast látið vita með þáttöku tímanlega, með því að senda tölvupóst með upplýsingum um viðkomandi á netfangið  tomas1@simnet.is

Vonumst til að sjá ykkur sem flest í haust.

Sumarkveðja  Stjórnin.
 
Hér má sjá gistimöguleika í Eyjum klikka HÉR
Síðan kemur lika til ykkar gistitilboð í tölvupósti, þig sem ekki fáið póst endilega sendið netfang ykkar á netfangið hér að ofan.
 
Prentvæn útgáfa af bréfinur HÉR