Þing Eyjar 2014 föstudagur

22.09.2014

Yfirmenn í eldhúsum heilbrigðisstofnana héldu sitt 16 .þing hér í Eyjum 19 og 20 september. Hópurinn átti hér semmtilega helgi og var uppsett dagskrá bæði til fróðleiks og skemmtunar og sáu heimamennirnir Tómas Sveinsson og Ævar Austfjörð um alla skipulagningu þingsins. Hafist var handa á föstudeginum kl 11.oo og var það gert vegna þess að sumir fundarmenn áttu ekki heimagegnt fyrr en með 10.00 ferðinni úr Landeyjarhöfn, en dagskráin hófst  með fræslu um almennt fæði og sjúkrafæði.

Að loknu þessu erindi bauð Grímur Kokkur til hádegiðverðar úr hráefni sem fyrirtæki hanns framleiðir. Að loknu hádegisverhléi var erindi um fæðuofnæmi og fæðuóþol sem er að færast töluvert í vöxt í þjóðfélaginu um báða þessa fyrirlestra sá Borghildur Sigurbergsdóttir næringarráðgjafi frá SAK. Þessir fyrirlestrar fóru fram á Gisihúsinu Hamri en þar næst var haldið í smá gönguferð í Sagnheima sem er safnahús og þar flutti  Páll Marvin líffræðingur  okkur fræbært erindi um humar  skemmtilegt erindi þar sem fundarmenn tóku þátt í með spurningum til Páls.

Að loknu erindi á Sagnheimum var haldið aftur á Gistihúsið þar sem Aðalfundur félagsins fór fram og verður skýrt frá í sér pistli. Um kvöldið var boðið til kvöldverðar á Captain Cool í boðið Víking seafood og Ásbjörns Ólafssonar, og áttu félagsmenn þarna ánægjulega kvöldstund saman.

Við viljum þakka öllum kælega sem komu að þessu með okkur fyrirlesurum fyrirtækjum og öllum sem lögðu hendur á plóg.

TS.

Myndir frá föstudeginum eru HÉR