Þing Eyjar 2014 Laugardagur

23.09.2014

Á laugardeginum var byrjað kl 10.00 á Sjúkrahúsinu  þar sem hjónin Berglind Sigmarsdóttir og Sigurður Gíslason eigendur veitingastaðarinns Gott fluttu okkur erindi um Heilsurétti fjölskyldunar en það eru bækur sem þau hjónin standa að og hófu á eigin spýtur ransóknir á mataræði vegan veikinda sonar þeirra, fróðlegt og skemmtilegt erindi sem félagsmenn tóku þátt í með spurningum til þeirra hjóna. Að loknum fyrir lestri  varstofnunin var skoðuð undir handleiðslu Hjartar Kristjánssonar læknis og fór hann yfir húsakynni og starfsemi stofnunarinnar , og auðvitað var eldhúsið skoðað og fór Ævar Austfjörð yfir þær breytingar sem til stendur að gera á eldhúsinu.

Stofnunin bauð í léttan hádegisverð þar sem setið var í góðu yfirlæti og málin rædd. Eftir hádegi beið okkur rúta frá Víkingtours til að heimsækja fyritæki og skoða okkur um var byrjað að koma til Gríms Kokks, og gaman að sjá og sýna hversu mikill vöxtur er í þessu fyrirtæki , og þarna tóku hjónin Grímu Gíslason og Ásta María á móti okkur og fóru yfir starsemi fyrirtækisins og boðið var uppá að smakka framleiðslu fyrirtækisins. Eftir smá bíltúr var komið við í Höllinni þar sem Bjarni Ólafur tók á móti okkur og Gunnar Heiðar frá Einsa Kalda, þarna skoðuðum við starfsemi og húsakynni sem eru ekki í minni kantinum. Ferð dagsins var síðan enduð í hinu nýja og glæsilega safni Eldheimum þar sem farið var yfir sögu eldgossins . Lokahófið fór síðan fram á Háaloftinu þar sem snæddur var dýrindis þriggja rétta matseðill og áttu félagar saman skemmtilega kvöldstund.
Enn og aftur viljum við þakka þeim sem komu að þessu með okkur, Berglindi og Sigurði Gíslasyni, Grími Kokk og Ástu Maríu, Bjarna Ólafi, Gunnari Heiðari, Þórarni og Vikingtours, Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja, Sælkeradreifingu og fleirum.

TS

Myndir má skoða HÉR og í myndasafni