STÓRELDHÚSIÐ 2015 verður í Laugardalshöllinni
29.06.2015Vegna fjölda fyrirspurna er ánægjulegt að greina frá því að stórsýningin STÓRELDHÚSIÐ 2015 hefur verið ákveðin fimmtudaginn 29. og föstudaginn 30. október n.k.
Sýningin verður sú stærsta og veglegasta til þessa og því urðum við að færa hana í stærra húsnæði. Laugardalshöllin varð fyrir valinu enda er þar frábær sýningaraðstaða fyrir svona stórsýningar og auðveld aðkoma fyrir bíla og gesti.
Öll helstu fyrirtæki á stóreldhúsamarkaði munu sýna og kynna – matvörur, tæki, búnað og annað er tilheyrir stóreldhúsum. Þetta verður flottasta sýningin til þessa svo - endilega taka dagana frá! Og sem fyrr er STÓRELDHÚSIÐ eingöngu ætlað starfsfólki úr stóreldhúsum og það er frítt inn fyrir gesti!
Allar nánari upplýsingar gefur: Ólafur M. Jóhannesson, sýningarstjóri í omj@omj.is 587 8825