HVERNIG Á AÐ MATREIÐA OFNÆMISFÆÐI Á ÖRUGGAN HÁTT?
08.10.2015Kynning:
Fæðuofnæmi eru síður en svo á undanhaldi þó svo að sumir séu sjálfgreindir eða að prófa sig áfram með að sleppa ýmsum fæðutegundum í sínu daglega mataræði í leit að betri líðan. Hvort sem fæðuofnæmið er læknisfræðilega greint eða ekki eiga allir rétt á að fá það ofnæmisfæði sem þeir telja sig þarfnast. Það kemur síðan í hlut þeirra sem annast matargerð víðs vegar í samfélaginu að matreiða og bera fram öruggan, vel samsettan og girnilegan mat. Sumir sem hafa þessu hlutverki að gegna finna ekki fyrir nægjanlegu öryggi og skortir jafnvel á þekkingu í tengslum við samsetningu á matseðlum og matreiðslu á ofnæmisfæði. Það má draga úr slíku óöryggi með markvissri fræðslu og leiðsögn þar sem leiðbeinendur þessa námskeiðs mæta þátttakendum
á miðri leið og bera virðingu fyrir þeirri reynslu sem þeir búa yfir og hafa til að miðla á móti.
Markmið:
Megin markmiðið með námskeiðinu er að bjóða upp á faglega fræðslu um fæðuofnæmi, alvarleika þeirra og hvernig tryggja megi góða og holla næringu. Lífsgæði þessara einstaklinga eru oft verulega skert og því verður fjallað um það hvernig tryggja megi félagslega þátttöku þessara einstaklinga í skóla-, frístunda- og félagsstarfi. Að lokum verður boðið upp á verklega kennslu í matargerð út frá matreiðslu á ofnæmisfæði og síðast en ekki síst, skapaður grundvöllur fyrir umræður og skoðanaskipti.
Það vantar aðgengilega fræðslu á þessu sviði og sér í lagi frá hendi þeirra sem hafa reynsluna báðum megin borðsins og hafa skilning á því hversu flókið það getur verið að tryggja öruggt fæði og umhverfi fyrir einstakling með fæðuofnæmi og önnur ofnæmi.
Markhópurinn:
Megin markópurinn eru þeir sem starfa í eldhúsum leikskóla og skóla, en einnig í skólamötuneytum, eldhúsum sjúkrahúsa og mötuneytum fyrirtækjum. Einnig starfsmenn í fyrirtækjum í matvælaframleiðslu og veitingageiranum.
Fyrri hlutinn af námskeiðinu gæti hentað vel stjórnendum og öðrum starfsmönnum í leik- og grunnskólum svo og frístundastarfi og er hægt að óska eftir að sitja aðeins fyrri hlutann. Foreldrar og aðrir aðstandendur eru einnig velkomnir á námskeiðið.
Kennslan fer fram í Dalvíkurskóla
Námskeiðsgjald: 23.000 kr
Astma- og ofnæmisfélag Íslands Síðumúla 6, 108 Reykjavík Veff.: www.ao.is Netf.: ao@ao.is
Laugardaginn 14. nóvember |
Bóklegt kl. 10:15 – 13:00 |
Verklegt kl. 13:30 – 17:30 |
Skráning og námskeiðsgjald:
Skráning og fyrirspurnir sendist á skrifstofu Astma- og Ofnæmisfélags Íslands ao