Ráðleggingar um mataræði
03.11.2015Á fimmtudegi eftir matarhlé fengum við fyrilestur um Ráðleggingu um mataræði og Kynningur á skráargatinu sem er samnorrænt matvælamerki. Það var Hólmfríður Þorgeirsdóttir Næringafræðingur hjá Landlæknisembættinu sem sá um þennan fyrirlestur sem var tvíþættur eins og fram kemur.
í ráðleggingu um mataræði komu fundarmenn með ýmsar spurningar um mataræði og þá sérstaklega nýjar rannsóknir um unnar kjötvörur og
krabbameinsáhættu, og sitt sýnist hverjum í þessum efnum, enda erum við með kjötiðnaðarmenn í okkar félagskap, næringarfræðinga, kokka og allt sem tilheyrir faginu. Hólmfríður fór vel yfir efnið og svaraði fyrirspurnum af röggsemi og hún gerði betur hún hefur sent okkur glærurnar ásamt slóðum um efnið til birtingar hér á okkar vef og má kynna sér efnið hér að neðan. Við félagsmenn þökkum Hólmfríði kærlega fyrir okkur.
Klikka hér til að sjá fræðsluefnið.