Sýningin Stóreldhúsið 2015

06.11.2015

Sýningin Stóreldhúsið 2015 fór fram dagana 29 og 30 október í Laugardalshöll. Þetta var frábær sýning sem birgjar geta verið stoltir af, mikið að skoða og fullt af nýjungum sem eru í boði og einnig væntanlegar í faginu okkar. Félagsmenn YEHÍ fjölmenntu auðvitað á þingið eins og áður, og var sýningin heimsótt báða dagana en þetta er orðin hefð hjá okkur að hafa aðalfundinn á sama tíma og sýningin er

annaðhvert ár í Reykjavík.

Aðaldagurinn hjá okkur á sýningunni var á fimmtudeginum 29 og var verið í Laugardalshöll til kl 18.30 en þá kom rúta og sótti mannskapinn og haldið var í heimsókn í Fastus ásamt fulltrúum Íslensk Ameríska.

Það var frábærlega tekið á móti okkur hjá þessum góðu birgjum, matur með öllu á boðstólum og áttum við þarna ánægjulega kvöldstund saman og viljum við koma á framfæri þakklæti til Fastus og ÍA fyrir frábæra gestristni og góðan stuðning við félagið okkar í ár eins og ávalt.

 

TS:

 

Myndir má nálgast HÉR  og HÉR

 

 

Myndband má nálgast HÉR