Eldhús Landspítalans skoðað

01.12.2015

Föstudaginn 30 október mættu félagsmenn YEHÍ á  Landspítalann til að skoða og hlýða á fyrirlestur. Það var Félagi okkar María Sigurðardóttir sem tók á móti okkur klukkan tíu um morgunin og byrjaði á því að bjóða okkur uppá kaffisopa meðan að félagsmenn voru að týnast á svæðið. María fór síðan ýtarlega yfir starfsemina með okkur allt frá því að vörurnar koma í hús frá byrgjum og allt að því þegar skammtað er í bakkana, og var gaman að sjá þetta vinnsluferli og auðvitað var endað í uppvöskunarrýminu, sem er mjög

vel tækjum búið og tæknilegt.

Í hádeginu var okkur boðið í hádegisverð og að honum loknum hlýddum við á góðann fyrirlestur um matarsóun og Svansvottun sem Elísabet Katrín Friðriksdóttir flutti okkur, og svaraði fjölda fyrirspurna frá félagsmönnum.

Við viljum þakka Landspítalanum, Maríu og Elísabetu kærlega fyrir þessar góðu móttökur og fræðandi erindi.

 

Að þessari heimsókn lokinni var haldið aftur í Laugardalshöll á  Sýninguna Stóreldhúsið og síðan var lokahóf á Hótel Holti um kvöldið og þar með lauk þessu góða þingi okkar.

 

Myndir Hér