Akureyri 2016

19.09.2016

Nú er óðum að styttast í Aðalfund okkar og þing sem haldið verður á Akureyri 30 september til 2 október. Við efumst ekki um að við eigum eftir að eiga frábæra helgi fyrir norðan þar sem margt verður gert sér til fræðslu og skemmtunar. Skráning hefur gengið með ágætum en alltaf má gera betur því við viljum sjá sem flesta félagsmenn taka þátt í starfinu til eflingar félagsins.
Við höfum þurft að

gera smávægilegar breytingar á dagskránni okkar, en rútuferðin fellur niður á föstudeginum þar sem okkar frábæru birgjar vilja ávalt fá okkur í heimsókn sem er vel og erum við ævinlega þakklát fyrir þann góða stuðning sem félagið okkar fær frá birgjum og öðrum velunnurum. Sýningin Local Fodd mun skipa stórann sess að þessu sinni en hún verður í Íþróttahöllinni.

Nýja DAGSKRÁ má nálgast hér