Aðalfundur YEHÍ 2016

01.10.2016

Aðalfundur félagsins var haldinn á Sjúkrahúsi Akureyrar  föstudaginn 30 september . Félagsmenn fóru að týnast inn um tíuleytið en við komum víða að eins og gefur að skilja og því eru kanski ekki allir á mínútunni. Um hálf ellefur setti formaðurinn Eyjólfur Kolbeins fund  og bauð alla velkomna til Akureyrar og síðan var tekið til við venuleg fundarstörf og var Olga Gunnarsdóttir frá Skógarbæ kosinn fundarstjóri. Síðan tók hver liðurinn við af öðrum, fundargerð síðasta aðalfundar var lesin upp af Tómasi ritara og síðan borin upp til samþykkis. Formaðurinn flutti skýrslu stjórnar og Garða Halldórsson gjaldkeri fór yfif endurskoðaða reikning félagsins. Kjósa þurftir um

stjórnarmenn og gáfu allir kost á sér áfram og voru kosnir með lófataki. Samþykkt var að hafa félagatla óbreytt og kynntir voru tveir nýjir félagar og koma þær báðar frá Sjúkrahúsinu á Akureyri  en þær heita Linda og Hanna Fríða og bjóðum við þær stöllur velkomnar í félagið.
Undir liðnum önnur mál talaði formaðurinn og óskaði eftir sniðugum hugmyndum af þingstað 2018 en þá verður félagið 20 ára og spruttu nokkurar umræður um það og m.a var stungið uppá að fara til Færeyja. Að öðru leyti urðu góðar umræður undir liðnum önnur mál svo sem um Timian innkaupakerfi , styrki stéttarfélaga og margt annað og sleit formaðu góðum aðalfundi um 11.50

Myndir má sjá HÉR