Eldhús SAK skoðað.

08.10.2016

Eftir aðalfundinn á Sjúkrahúsi Akureyrar þann 30 sept síðastliðinn var okkur boðið að kíkja í matsalinn og fá okkur að borða sem var vel þegið að félagsmönnum , svona eftir setuna á aðalfundinum. Eftir frábæra máltíð var okkur boðið að skoða eldhúsið undir dyggri leiðsögn þeirra Önnu Rósu, Lindu og Hönnu Fríði en þá tvær síðastnefndu eru nýjir félagar í YEHÍ . Þetta er flott eldhús hjá þeim stöllum og 

vel skipulagt þó það sé ekki nýtt af nálinni. Það fer margt aðthyglisvert fram í sérfæði hjá þeim og brauðin sem eru bökuð á staðunum eru ekki af verri endanum og voru margir að spyrja um uppskriftir af þeim, og eru þær komnar hér inn á vefinn. Við þökkum Sjúkrahúsinu og þeim stöllum fyrir okkur bæði góðan mat, aðstöu fyrir fundinn og síðan en ekki síst góða leiðsögn um eldhusið.

 

TS.

Myndir má nálgast HÉR