Heimsókn til Ekrunar á Akureyri.
11.10.2016Þegar dagskrá á SAK var lokið var okkur boðið í heimsókn til Ekrunar sem er til húsa að Óseyri 3 á Akureyri. Það var vel tekið á móti félagsmönnum af starfsmönnum Ekrunar sem fóru yfir starfsemina með okkur og sýndu húsakynnin sem þeir hafa yfir að ráða, en það kom manni á óvart hversu mikil umsvif eru fyrir norðan hjá Ekrunni. Að lokinni kynningu var okkur
boðið uppá léttar veitingar og að smakka sýnishorn af þessum frábæru vörum sem þeir hafa uppá að bjóða.
Ekran er síðan komin með nýjan innkaupavef sem ég vil biðja félagsmenn að kynna sér og skrá sig inn, en þetta er verulega flottur vefur sem gefur allar upplýsingar um þá vörur sem skoðaðar eru til kaups.
Að lokum viljum við þakka Ekrunni fyrir frábærar móttökur og mikils velvilja í garð félags okkar í gegnum tíðina.
TS.
Myndir í Myndasafni HÉR