YEHI þing fimmtudagur.

01.11.2017

Eftir vel heppnaðann aðalfund félagsins fengum við góð gesti í heimsók til okkar en það voru þeir Haraldur Pétursson og Atli Edgars frá Madsa sem er nýtt fyritæki í matarbransanum og kynntu þeir félagar fyritækið og vörulista fyrir okkur ásamt því að leyfa okkur að smakka þrjár tegundir af olífuolíu sem þeir bjóða uppá og var gaman að finna muninn á þessum tegundum eftir hversu mikið þær eru unnar. Madsa er fyritæki í örum vexti og verður gaman að fylgjast með þessu áhugaverða fyritæki og hvetjum við félagsmenn til að kynna sér þær vörur sem þeir hafa uppá að bjóða. Að lokinni kynningu buðu þeri félagar fundarmönnum uppá súpu í hádegishléinu og berum við þeim bestu þakkir fyrir þeirra framlag.
Eftir hádegi eða kl 13.00 hófst fyrilestur í umsjón Lukku Pálsdóttur frá Happ undir heitinu “Ný viðhorf í mataræði¨ Þessi fyrilestur og fræðsla var mjög skemmtilegur og 

þá ekki síst vegna góðrar uppsetningu efnisins og skemmtilegrar  framkomu Lukku þar sem hún náði vel til fundaræmanna með að virkja þá til þáttöku um efnið. Þetta erindi fjallar um hvernig matur getur virkað til lækninga og í sumum tilfellum komið til virkni með lyfnum og jafnvel í staðinn fyrir lyf er rétt mataræði er notað. Von bráðar mun fyrirlesturinn birtast hér á vefnum okkar okkur og öðrum til fróleiks. Þetta var fjögurra tíma efni sem farið var ýtarlega yfir og viljum við þakka Lukku fyrir frábært erindi.
Um fjögurleytið fóru félagar að týnast niður í Laugardalshöll en þar var sýningin Stóreldhúsið 2017 uppsett og er óhætt að segja að hún toppar sig alltaf annað hvort ár og er einnig að stækka, og var mér sagð að allir básar hefðu verið uppseldir í febrúar s.l.
Um kvöldið var okkur boðið til Ekrunar, en þar var tekið frábælega á móti okkur, boðið uppá glæsilegna þriggja rétta matseðil með öllu. Jón Ingi framkvædastjóri fór í stórum dráttum yfir starfsemi fyritækisin og bauð uppá skoðunarferð um vöruhúsið sem er eingin smá smíði. Við áttum þarna frábæra kvöldstund með starfsfólki Ekrunar og vilju við koma á framfæri innilegu þakklæti og velvilja til félags okkar en þeir eru ával reiðubúnir ef til þeirra er leytað.

TS.

MYNDASAFN