Óskar Hafnfjörð Gunnarsson kjörinn formaður MATVÍS

15.03.2018

Óskar Hafnfjörð Gunnarsson hefur verið kjörinn formaður Matvís. Hann hlaut 203 atkvæði. Þrjú voru í framboði til formanns Matvís. Á kjörskrá voru 1774 og greiddu 392 atkvæði.
Atkvæðagreiðslan var rafræn, hún hófst í hádegi mánudaginn 12. mars s.l. og lauk klukkan 12.00 í dag.
Féllu atkvæði þannig: Ágúst Már Garðarsson hlaut 167 atkvæði, Guðrún Elva Hjörleifsdóttir hlaut 20 atkvæði og Óskar Hafnfjörð Gunnarsson hlaut

203 atkvæði og voru 2 sem tóku ekki afstöðu.
Óskar Hafnfjörð tekur við formennsku af Níels Sigurði Olgeirssyni. Níels var kosinn formaður Félags matreiðslumanna 1989 og svo formaður MATVÍS frá stofnun 1996.
 
Þetta kemur fram á vefsíðu Matvís.