YEHÍ þing 2018 föstudagur.
08.10.2018Að loknum aðalfundi félagsins á Stractahótelinu á Hellu beið fyrir utan langferðabifreið og var förinni heitið á Hvolsvöll. Þegar þangað var komið var tekið á móti okkur hjá Sláturfélagi Suðurlands, og hópnum skipt í tvo hópa og haldið í skoðunarferð um framleiðsluferli SS sem er engin smá smíði með mörgum deildum. Undir góðri leiðsögn fengum við að fræðast um þetta mikla fyrirtæki og vinnslu þess en þarna er valinn maður í hverju rúmi. Að skoðunarferð lokinni var okkur boðið í hádegisverð, og smakkað á framleiðslu SS og fengum við líka kynningu á glærum í matsalnum. Þúsund þakkir til ykkar fyrir frábærar móttökur, fræðsluna og
veitingar.
Næst var haldið að Kirkjuhvoli Dvalareheimili aldraðara á Hvolsvelli, og þar var tekið á móti okkur af höfðingskap og kynnt fyrir okkur starfsemin og allt skoðað hátt og lágt og þar á meðal nýtt eldhús hjá henni Boggu okkar en þar er hún komin með glæsilega aðstöðu. Næst var haldið út í óvissuna en þær Inger og Bogga voru búnar að plana óvissuferð og var haldið inn í Fljótshlíð, og var fyrsti áfangastaðurinn Hótel Fljótshlíð þar sem við fengum fyrirlestur um starfsemina sem er að mestu leyti sjálfbær, frábært framtak þar á ferð og fengum við að skoða eldhúsið og þá starfsemi sem þar fer fram. Síðan var haldið að bæ einum í Fljótshlíðinni þar sem Sigurður nokkur hefur komið upp miklu og athyglisverðu safni þar sem markt var að skoða allt frá glæsi bifreiðum niður í smáhluti, eins og sjá má í myndasafni. Að lokn um túr í Fljótshlíðinni var haldið á hið nýja safn Lava á Hvolsvelli og eldgosasýningin skoðuð ásamt áhrifamikilli kvykmind sem sýnd er í safninu. Að sýningu lokinni kom hópurinn sér vel fyrir í borðsalnum og snæddum fínasta mat af hlaðborði staðarinns þer sem margt var í boði, og að kvöldverði loknum var haldið á Stracta Hótelið á Hellu eftir annasaman og jafnt sem áður skemmtilegann dag.
TS.