YEHÍ þing 2018 laugardagur.
08.10.2018Á laugardagsmorgun var haldið áfram með dagskrá þingsins og var fyrsti liður fyrirlestur Eyþórs Eðvaldssonar frá Þekkingarmiðlun. Þetta var í einu orði magnað erindi og held ég að allir hafi lært mikið af þessu, eins og t.d að taka starfsmannaviðtöl. Eyþór lék sjálfur erfiða starfsmanninn og þurftum við m.a að taka hann í viðtal og úr varð hin fróðlegasta skemmtun, að öðrum fyrirlestrum í gegnum tíðina held ég að þessi hafi bæði haft mest fræðandi áhrif og skemmtanagildi var í toppi. Að loknum fyrirlestir var boðið í hádegisverð á hótelinu í boði Reykjagarðs, þar sem okkur var kynnt starfsemi fyrirtækisins og síða var
boðið uppá kjúkling í ýmsum útfærslum frá þeim sem bragðaðist vel enda vel boðið og berum við Reykjagarði bestu þakkir fyrir. Eftir hádegi var haldið að Lundi dvalarheimili aldraðra á Hellu þar sem tekið var á móti okkur og kynnt starfsemin ásam góðum skoðunartúr um heimilið undir dyggri leiðsögn Inger félaga okkar í YEHí. Villt og alið er nýtt fyrirtæki á Hellu sem sérhæfir sig í kjötvinnslu, villibráð o.fl og það var næsti áfangastaður okkar. Þar skoðuðu við þetta glæsilega nýja fyrirtæki og okkur var boðið uppá léttar veitingar, gæsasúpu, og snittur með villibáð o.fl. Við þökkum þeim mikið vel fyrir frábærar móttökur og meigi þetta fyrirtæki blómstra í komandi framtíð.
Til stóð að fara í Ægissíðuhella þar sem fólk frá Fiskás ætlaði að taka á móti okkur en vegna mikilla rigninga var ekki hægt að fara í hellana, en þess í stað var haldið í Fiskás sem er fiskvinnsla og fiskbúð á Hellu. Þar eins og annarstaðar var tekið á móti okkur með virktum og starsemin kynnt og boðið uppá léttar veitingar, kærar þakkir Fiskás. Eftir góðann dag var síðan haldið á Hótelið til að græja sig fyrir kvöldið.
TS.
MYNDIR Í MYNDASAFNI