20 ára afmælishóf YEHÍ

09.10.2018

Stórafmæli YEHÍ var gerð góð skil á laugardagskvöldi 29 september að loknu frábæru þing. Lokahófið var í alla staði hið glæsilegasta og hófust herlegheitin kl 19.30 þá hópaði liðið sér saman og fékk sér fordrykk að eigin vali og spjallað saman góða stund þangað til við gengum í veislusalinn. Veislustjórar og skemmtikraftar kvöldsins voru þeir sömu og á tíu ára afmælinu á Egilsstjöðum, og þó þeir væru

tíu árum eldri núna höfðu kapparnir engu gleymt, en þetta voru þeir Stefán og Davíð óperusöngvarar og Helgi sá að venju um undirleikinn..
Boðið var uppá þriggja rétta matseðil þar sem byrjað var á ljúffengri sjávarréttasúpu, síðan kom Lambafille með öllu tilheyrandi og að lokum frábær eftirréttur. Veislustjórnarni tóku svo skorpur á milli rétta og að borðhaldi loknu var tekið til við skemmtiatriðin í formi söngs og leiks og voru félagsmenn drifnir í eitt og eitt atriði og var ekki að sjá annað en allir skemmtu sér konunglega á þessari afmælishátíð, og viljum við í YEHÍ koma fram þakklæti til allra sem komu að þessu með okkur, sérstakelga þær Inger og Sigurborg en þær stóðu sig eins og hetjur í allri skipulagningu þessa þings.

TS.