Stóreldhúsið 2019

02.06.2019

Stórsýningin STÓRELDHÚSIÐ 2019 verður haldin fimmtudaginn 31. október og föstudaginn 1. nóvember í Laugardalshöllinni. Sýningin hefur stöðugt verið að stækka síðan fyrsta stóreldhúsasýningin var haldin 2005. Stefnir í stórglæsilega og afar fjölbreytta sýningu.
Almenningi verður ekki boðið á STÓRELDHÚSIÐ 2019 heldur er sýningin eingöngu ætluð starfsfólki og stjórnendum stóreldhúsa. Öll helstu fyrirtæki á stóreldhúsamarkaðnum munu kynna matvörur, tæki, búnað og annað er tilheyrir hótelum, gistihúsum, mötuneytum og öðrum fyrirtækjum og stofnunum þar sem stóreldhús er 

að finna.
Sýningin hefst klukkan 12.00 báða dagana og lýkur klukkan 18.00 á fimmtudag og klukkan 17.00 á föstudag.
Það er mikill spenningur fyrir sýningunni og um að gera að taka dagana frá og allt er frítt fyrir fagfólk stóreldhúsanna.
Sjáumst öll í haust, Ólafur M. Jóhannesson, sýningarstjóri STÓRELDHÚSIÐ 2019 olafur@ritsyn.is