Aðalfundur YEHÍ 2019
31.10.2019Aðalfundur YEHÍ fór fram fimmtudaginn 31 október á Hótel Íslandi í Reykjavík, en að venju er þingið og aðalfundurinn haldinn á sama tíma og sýningin Stóreldhúsið. Formaður félagsins Eyjólfur Kolbeins setti fundinn kl 10.00 og bauð fundarmenn velkomna og stakk síðan uppá Birni Ólafssyni sem fundarstjóra og Tómasi Sveinssyni sem fundarritara og var það samþykkt með lófataki og að því loknu tók Björn við stjórn fundarinns og byrjaði að biðja fundarmenn að slökkva á símunum. Næst var kynning á nýjum félögum sem eru 6 að þessu sinni, Vilmundína Lind Kristjánsdóttir, Aðalbjörg Hrafnsdóttir, Guðmundur H.Helgason, Bjarni Birgisson, Sigurgeir Sigurgeirsson og Loftur Gíslason. Ritari fór yfir fundagerð síðasta fundar og var hún samþykkt, Eyjólfur fór síðan með skýrslu stjórnar og stiklaði á stóru á því sem gerst hafi frá síðasta þingi. Garðar Halldórsson lagði því
næst fram endurskoðaða reikning félagsins og er staðan nokkuð góð og voru reikningarnir samþykktir að lokinni kynningu. Ekki voru neinar lagabreytinga á dagskrá en Tómas lagði nýja persónuverndaryfirlýsingu til samþykktar og er hún kominn inn á heimasíðuna okkar. Í kosningu stjórnarmanna var Tómas kosinn ritari til næstu tveggja ára, og allir þeir sem hafa verið í stjórn voru kosnir áfram en sú breyting var að Guðrún Kristín kemur inn í kynningarstarfið. Undir liðnum önnur mál talaði formaður og fór yfir dagskrá helgarinnar, og bar upp Stykkishólm sem næsta þingstað og var það samþykkt
TS.