Þingið fimmtudagur

31.10.2019

Að loknum aðalfundi YEHÍ var tekið hlé og fengið sér kaffi og hressingu, en síðan var komið að fyrsta erindi þingsins en það var fyrirlestur sem var í umsjón Gísla Matthíasar Auðunssonar matreiðslumeistara á veitingastaðnum Slippnum í Vestmannaeyjum. Gísli fór yfir ferill sinn frá því að hann hóf matreiðslunám og sagði frá þeim frábæru hlutum sem hann er að gera og þá sérstaklega úr íslensku hráefni, mikill snillingur þar á ferð, og fór efnið vel í fundarmenn sem þökkuðu kærlega fyrir sig með góðu lófataki. Að erindi Gísla loknu var haldið í matsalinn og fengið sér léttur hádegisverður.
Eftir hádegisverðarhlé var haldið áfram með dagskrá og næst í pontu var Laufey Karlsdóttir frá Sýni og var

hún með erindi um HACCP og öryggi matvæla. Það er alltaf nauðsynlegt að rifja upp þessi mikilvægu atriði sem geymsla matvæla er. Þetta var hörku nánskeið hjá Laufeyju og fór hún vel og ákveðið yfir efnið á góðum tveggja tíma fyrirlestri og þökkum við Laufeyju kærlega fyrir.
Þega dagskrá föstudagsins var haldið á sýninguna Stóreldhúsið 2019 og þar var margt að sjá enda okkar hópur mjög áhugasamur og ötull við að kynna sér nýjungar og fleira sem í boði er hverju sinni og ekki skemmir hvað birgjar taka vel á móti fólki þegar það mætir. Við enduðum síðan föstudaginn á þvi að fara í heimsókn til Ásbjörns Ólafssonar heilverslun og þar var tekið á móti okkur af miklum myndarskap eins og ávalt, og þar fengum við dýrindis máltíð og smá kynningu á fyrirtækinu og þökkum við þessu heiðursfólki hjartanlega fyrir frábærar móttökur.
TS.

FLEIRI MYNDIR HÉR