Þingið föstudagur

02.11.2019

Föstudagurinn hófst á þvi að rúta kom að sækja hópinn á Hótel Íslands kl 10.00 og nú var haldið í Bláa Lónið til að kynna okkur reksturinn þar og þá sérstakelga veitinga og gistihlutann. Þegar komið var á staðinn var farið með okkur í fyrirlestrasal þar sem markaðsstjóri fyrirtækisins fór yfir sögu fyrirtækisins og þann mikla vöxt sem hefur verið á þeim bænum en í dag starfa rúmlega níu hundur manns hjá fyrirtækinu. Að lokinni kynningu var boðið uppá léttann hádegisverð og síðan var okkur skipt upp í litla hópa og haldið í skoðunarferð um eldhúsið ásam öllu sem því fylgir og endað var í hinum frábæra vínkjallara sem er á staðnum grafinn niður í hraunið. Þetta var mikil upplifun að fá svona skonunarferð um fyrirtækið og þökkum við stjórnendum og

starfsfólki kærlega fyrir frábærar móttökur. Um tvöleytið var haldið til baka og næsti viðkomustaður var Landspítalinn til að skoða nýtt endur bætt eldhús undir dyggri leiðsögn Guðrúnar Kristínar og hennar fólks í eldhúsi Landspítalanns. Síðan var haldið á hið nýja Sjúkrahótel á Landspítalanum og það skoðað. Að þessum heimsóknum loknum var hladið aftur í Laugardalshöllina og haldið áfram að skoða sýninguna Stóreldhúsið. Lokahóf okkar var síðan á Brasserie Eiriksson að laugarvegi 77 og þar fengum við frá bærann mat og þjónustu allt til fyrirmyndar og mælum við fagfólkið eindregið með þessum stað.
Að lokum viljum við félagsmenn þakka öllum sem komu að þessu þingi á einn eða annann hátt, enda vel heppnað í alla staði.

TS:

MYNDIR MÁ NÁLGAST HÉR