Nýtt hjá Ekrunni!

10.06.2021

Við erum stolt að segja frá því að Ekran hefur tekið við dreifingu á vörum frá Unilever Food Solutions.
Þetta eru heimsþekkt vörumerki eins og Knorr, Hellmann’s, Maizena, Lipton og Carte D’or sem eru leiðandi í matargerð á Íslandi og finnast í stóreldhúsum um allt land.
Unilever Food Solutions er fjölþjóðlegt

fyrirtæki byggt á þekkingu matreiðslumanna og upplifun þeirra í veitingaheiminum. Markmið þeirra er að gera líf þitt einfaldara, mæta hversdagslegum þörfum, veita góða næringu og bjóða upp á hágæða vöru.
UFS leggur mikla áherslu á sjálfbæra framleiðslu. Hluti af umhverfisvitund þeirra er að nota náttúruleg innihaldsefni og styðja við líffræðilegan fjölbreytileika. Þar má nefna að vörumerki þeirra nota aðeins vottaða pálmaolíu, nota umbúðir sem skapa minni úrgang og eyða minni orku. UFS hefur mjög metnaðarfullar áætlanir um ekkert, minna og betra plast. 

 

Sjá nánar www.ekran.is