Salmonella í bananaflögum – Vinsamlegast takið vöruna strax úr umferð og hættið neyslu

13.07.2021

Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af Tiger bananaflögum  sem fyrirtækið Tiger flytur inn vegna salmonellu. Fyrirtækið hefur í samráði við heilbrigðiseftirlit Reykjavíkurborgar innkallað vöruna og sent út fréttatilkynningu.

Matvælastofnun fékk upplýsingar um vöruna í gegnum evrópska hraðvirðvörunarkerfið RASFF  um matvæli og fóður.

Innköllunin á eingöngu við um 

eftirfarandi framleiðslulotu:

Vörumerki: Tiger
Vöruheiti: Banana chips
Geymsluþol: Best fyrir dagsetning: 16.09.2021
Lotunúmer: 8008634
Nettómagn: 125 g
Geymsluskilyrði: Á ekki við
Framleiðsluland: Filippseyjar
Innflytjandi: Tiger, Laugavegi 13 101 Reykjavík
Dreifing: Tiger, Laugavegi 13 101 Reykjavík
Neytendum sem keypt hafa ofangreinda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig er hægt að skila henni í Tiger þar sem hún var keypt. Nánari upplýsingar www.flyingtiger.com

„Vinsamlegast takið vöruna strax úr umferð og hættið neyslu“, segir í  fréttatilkynningu frá Tiger HÉR