Aðalfundur YEHÍ 2022
11.11.2022Aðalfundur félagsins var haldinn á Dvalarheimilinu Mörk í Reykja víka fimmntudaginn 10 nóvember. Eyjólfur Kolbeins setti fundinn 9:45 og bauð félagsmenn velkomna til þessa fundar sem er sá fyrsti frá því 2019 en starfið hefur legið niðri vegna heimsfaraldursins. Fyrsti liður var að kjósa fundarstjóra og ritara og voru kunnugleg andil sem tóku það að sér Björn Ólafsson var kjörinn fundarstjóri og Tómas Sveinsson fundarritari, Björn þakkaði traustið og tók síðan til við að stjórna dagskrá fundarinns. Tómas ritari las fundagerð síðasta aðalfundar og var hún samþykk, Eyjólfur Kolbeins formaður flutti skýrslu stjónran sem ver með rýrara móti vegna lítilla starfsemi en stórn hefur aðaleg verið í síma og netsambandi auk þess að hafa hittst einu sinni frá 2019. Okkar féhirðir til margra ára Garðar Halldórsson fór því næst yfir reikninga síðustu þriggja á og er félagið í ágætis málum fjárhagslega, og eftir yfirferð Garðars voru reikningarnir bornir upp og
samþykktir samhljóða. Lagabreytingar voru engar þannig að ekki þurfti að dvelja lengi við þann lið. Undir liðnum kosning stjórnar kom upp tillaga frá ritara um að stjórn yrði kosinn til áframhaldandi setu þ.e.a.s þeir sem vilja sitja áfram og taka síðan upp fyrra form á næsta þingi 2023 eins og lög félagsins segja og var þetta samþykkt með smá breytingu. Ákveðið var að hafa félagsgjald óbreytt, og kynntir voru nýjir félagar, en það eru fleiri að koma inn í félagið heldur en mættir voru á aðalfund og er það mikið ánægjuefni að fá nýtt fólk til liðs við okkur. Smá spjall kom undir liðnum önnur mál og að þeim lið loknum sleit formaðurinn Eyjólfur Kolbeins fundi kl 10:15
TS.