Fræðsla á þingi YEHÍ
16.11.2022Eftir aðalfundinn fimmtudaginn 10 nóvember var í boði fræðsla og var fyrstur á dagskrá Hafliði Halldórsson en hann hefur verið ötull í kynningarstarfi fyrir Bændasamtökin og sjálfsagt fáir sem vita meira um íslenskt lambakjöt en hann. Íslenskt lambakjöt hefur verið í mikilli sókn undanfarin ár enda neytendur smám saman að átta sig á hversu mikil úrvalsvara er þar á ferð. Það er oft talað um að glöggt sé gests augað, en ef marka má viðbrögð erlendis við lambakjötinu er bjart fram undan.
Hreinleiki afurðanna og gæði rímar fullkomlega við þróun á neytendamarkaði um heim allan þar sem neytendur gera æ meiri kröfur til framleiðenda. Íslenskir sauðfjárbændur standa undir þeim kröfum og
gott betur, enda hafa þeir verið meðvitaðir um þessa þróun. Markaðurinn er þar að auki tilbúinn í næsta skref, sem er fullur rekjanleiki afurðanna.
Hafliði fór yfir málefnið af kostgæfni og svaraði spurningum fundarmenna og átti gott spjall við okkur félagsmenn og þökkum við Hafliða kærlega fyrir.
Eftir matarhlé var komið að fræðslu tvö en hún var um varnarefni í grænmeti og ávöxtum og var þetta erindi í höndum Vordísar Baldursdóttur Verkefnastjóra. Helstu eiturefni sem finnast í ávöxtum og grænmeti hér á landi eru svonefnd varnarefni. Þeim er oftast skipt í fjóra flokka, það er skordýraeitur, illgresiseyðar, sveppalyf og stýriefni, en það eru efni sem stjórna vexti plantna.
Til eru að minnsta kosti 1.300 virk efni sem falla undir skilgreininguna varnarefni og talið er að í heiminum öllum innihaldi rúmlega 35.000 vörur einhver varnarefni eða blöndur þeirra. Árið 2013 er skimað fyrir 63 virkum efnum hérlendis en samkvæmt matvælalöggjöf Íslands er skylt að skima fyrir um það bil 190 efnum og krafist getu til að skima fyrir allt að 300 efnum. Flest nágrannalönd okkar skima fyrir töluvert fleiri en 300 efnum og núverandi skimun hér á landi er því ónóg. Erfitt er að segja nákvæmlega til um hvaða efni er raunverulega að finna í afurðum sem eru til sölu hér á landi, nema með því að skoða einnig niðurstöður skimunar í nágrannalöndunum. Leiða má að því líkum að mörg efni séu til staðar í afurðum sem seldar eru hérlendis án þess að við vitum af þeim. Við skimum ekki fyrir þessum efnum en þau finnast í afurðum í nágrannalöndum okkar.
Erindi Vordísar var frábært og fræðandi og munu glærur hennar birtast hér á heimasíðunni fljótlega.